Okkar þjónusta fyrir húsfélagið þitt
Innheimta
Sendum út rafræna greiðsluseðla og innheimtum húsfélagsgjöld sem fara beint inn á bankareikning húsfélagsins og bókhaldið fært samhliða.
Stjórn húsfélagsins getur alltaf fylgst með stöðunni í gegnum vefaðgang.
Rekstur
Hússjóðurinn getur haft milligöngu með aðkeypta þjónustu. Við leitum hagstæðustu tilboða í hefðbundinn rekstur s.s. þrif, tryggingar, garðaþjónustu, snjómokstur auk þess að afla tilboða í sérstök verk og framkvæmdir.
Greiðslur
Stjórn húsfélags samþykkir reikninga með rafrænum og rekjanlegum hætti. Hússjóðurinn sér svo um að greiða alla samþykkta reikninga á réttum tíma og bóka samhliða.
Þannig fæst rétt yfirsýn yfir stöðu húsfélagsins á hverjum tíma.
Framkvæmdir
Milliganga um að kalla til trausta verktaka í viðhald og smærri verk.
Öflun tilboða í stærri verk og aðstoða við að koma þeim í farveg.
Bókhaldsþjónusta
Bókhaldið er fært jafnóðum og greiðslur húsfélagsgjalda berast og með sama hætti þegar samþykktir reikningar eru greiddir.
Stjórn húsfélagsins samþykkir reikninga rafrænt með rekjanlegum hætti. Reikningar og greiðslur eru bókuð jafnóðum.
Stjórn húsfélagsins hefur réttar upplýsingar um stöðu félagsins hverju sinni í gegnum vefaðgang.
Aðalfundur
Undirbúningur og lögleg boðun aðalfundar.
Útvegum fundaraðstöðu ef hana skortir.
Framkvæmd og stjórnun aðalfundar auk ritunar fundargerðar sem gerð er aðgengileg á vefsvæði húsfélags.
Stöðufundir og aukafundir eftir óskum.
ÖRUGGARI REKSTUR
OG
SKÝR YFIRSÝN

Þinn tími er dýrmætur - nýttu hann sem best
Ekki eyða þínum dýrmæta tíma í að kljást við umsjón húsfélagsins. Við hjá Hússjóðnum erum vön að sjá um allt sem kemur að húsfélögum og gerum það vel.
Teymið okkar
Hjá Hússjóðnum starfar fólk sem hefur ástríðu fyrir því að létta þér lífið og sjá til þess að húsfélagið þitt sé vel rekið með allar upplýsingar réttar og aðgengilegar með vönduðu og faglegu bókhaldi.
Ragnarsson Framkvæmdastjóri
Guðlaugsson Sölumaður
Guðlaugsson Lögfræðingur
Fáðu hagstætt tilboð frá okkur
Hafðu samband
Ef þig vantar frekari upplýsingar eða hefur spurningar áður en þú óskar eftir tilboði hafðu þá endilega samband og við svörum þér hratt og vel.
