EIGNAUMSJÓN

Hagkvæmari eignaumsjón fyrir húsfélög

Okkar eignaumsjón fyrir húsfélagið þitt

Við bjóðum sérsniðna þjónustuleiðir fyrir eignaumsjón eftir þörfum hvers húsfélags.

Eignaumsjón hjá Hússjóðnum er sérhæfð þjónusta sem auðveldar vinnu og álag á eigendur og stjórn húsfélaga. Við önnumst daglegan rekstur og umsjón húsfélagsins auk annarra verka samkvæmt samkomulagi. Helstu þjónustuþættir í eignaumsjón eru:

Umsjón

Viðhald

Eftirlit

Framkvæmdir

Samskipti

Önnur verkefni

Umsjón

  • Umsjón með viðburðum húsfélagsins. Sumarhátíðir, grill, o.s.frv.
  • Skráningu eftirlitsferða, viðhaldi.

Eftirlit með

  • Samningsbundnum þrifum s.s sameign, bílakjallara, hús- og gluggaþvottur, lóðaþrif og ruslageymslum.
  • Ruslageymslum (ruslagámum), losa stíflur, panta auka losun eftir þörfum.
  • Sameiginlegum svæðum með munum sem hafa verið skildir eftir. Merkja með miða og gefa frest til að fjarlægja. Ef eigendur vitja ekki hlutarins er hann fjarlægður með samþykki stjórnar.
  • Kerfum, loftræstikerfi, sprinklerkerfi, aögangstýringar o.s.frv.
  • Viðhald með görðum, vökvun á grasi og gróðri yfir sumartímann, garõsláttur og önnur garðyrkjustörf.
  • Lyftum, hvort villumeldingar séu til staðar. Kalla út viôgerõarmenn eftir þörfum.
  • Raforkunotkun, flagga ef upp kemur óeõlileg notkun.
  • Slökkvitækjum, einu sinni á ári.
  • Að umsamin verk þjónustuaðila og verktaka séu kláruð.

Einföld samskipti

Aðgengilegt beiðnakerfi í gegnum tölvupóst þar sem allir íbúar geta sent inn athugasemdir og ábendingar sé eitthvað að. 

Samskipti við

  • Tryggingarfélög ef upp koma tjón.
  • Verktaka og þjónustuaðila húsfélagsins eftir atvikum.
  • Eigendur og stjórn með svörum við einföldum fyrirspurnum sem send eru á tölvupósti.
  • Stjórn og eigendur í húsfélaginu eftir atvikum.
  • Eigendur með tölvupóstum og tilkynningum auk þess að hengja upp og taka niður auglýsingar til íbúa á stigagöngum.
  • Samskipti við þjónustuaðila.

Viðhald

  • Viðhald á lýsingu, t.d. peruskipti og perukaup.
  • Bílskúrshurðir, kalla út þjónustuaðila eftir þörfum, fylgja eftir reglulegu viðhaldi á 3 mánaða fresti.

Önnur verkefni

  • Önnur verkefni sem falla utan reglubundins eftirlits er unnið á tímakaupi. Innkaup fyrir húsfélagið t.d. ljósaperur, málningu og annað sem stjórn óskar eftir að verõi keypt.
  • Uppsetning á nýjum búnaði/tækjum sem húsfélagið festir kaup á, ef sérþekkingar er ekki þörf.
  • Minniháttar viðgerðir/framkvæmdir í sameign. Ef umfang er meira þá er metið hvort að kalla þurfi til verktaka.
  • Afla tilboða í stærri verk f.h. húsfélagsins.

Stærri aðgerðir og framkvæmdir

Láttu okkur sjá um að afla tilboða og eða sjá um framkvæmdir. Við erum í sambandi við mjög færa iðnaðarmenn, smiði, pípara, rafvirkja o.fl. sem við treystum fyrir verkefnum.

SÉRSNIÐIN EIGNUMSJÓN FYRIR
ÞITT HÚSFÉLAG

Fáðu hagstætt tilboð frá okkur í eignaumsjón

Hafðu samband

Ef þig vantar frekari upplýsingar eða hefur spurningar áður en þú óskar eftir tilboði hafðu þá endilega samband og við svörum þér hratt og vel.