Húsfélög
einstaklinga

Fáðu tilboð í hagstæða húsfélagaþjónustu fyrir þitt húsfélag

Fáðu hagstætt tilboð fyrir þitt húsfélag

Okkar þjónusta fyrir húsfélagið þitt

Innheimta

Sendum út rafræna greiðsluseðla og innheimtum húsfélagsgjöld sem fara beint inn á bankareikning húsfélagsins og bókhaldið fært samhliða.

Stjórn húsfélagsins getur alltaf fylgst með stöðunni í gegnum vefaðgang.

Rekstur

Hússjóðurinn getur haft milligöngu með aðkeypta þjónustu. Við leitum hagstæðustu tilboða í hefðbundinn rekstur s.s. þrif, tryggingar, garðaþjónustu, snjómokstur auk þess að afla tilboða í sérstök verk og framkvæmdir.

Greiðslur

Stjórn húsfélags samþykkir reikninga með rafrænum og rekjanlegum hætti. Hússjóðurinn sér svo um að greiða alla samþykkta reikninga á réttum tíma og bóka samhliða.

Þannig fæst rétt yfirsýn yfir stöðu húsfélagsins á hverjum tíma.

Framkvæmdir

Milliganga um að kalla til trausta verktaka í viðhald og smærri verk.

Öflun tilboða í stærri verk og aðstoða við að koma þeim í farveg.

 

Bókhaldsþjónusta

Bókhaldið er fært jafnóðum og greiðslur húsfélagsgjalda berast og með sama hætti þegar samþykktir reikningar eru greiddir.

Stjórn húsfélagsins samþykkir reikninga rafrænt með rekjanlegum hætti. Reikningar og greiðslur eru bókuð jafnóðum.

Stjórn húsfélagsins hefur réttar upplýsingar um stöðu félagsins hverju sinni í gegnum vefaðgang.

Aðalfundur

Undirbúningur og lögleg boðun aðalfundar.

Útvegum fundaraðstöðu ef hana skortir.

Framkvæmd og stjórnun aðalfundar auk ritunar fundargerðar sem gerð er aðgengileg á vefsvæði húsfélags.

Stöðufundir og aukafundir eftir óskum.

 

Hafðu samband

Ef þig vantar frekari upplýsingar eða hefur spurningar áður en þú óskar eftir tilboði hafðu þá endilega samband og við svörum þér hratt og vel.